Deildarstjóri kennslu óskast

Staða deildarstjóra við Grunnskólann Hellu er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu sem felur í sér kennslu skjólstæðinga sem dvelja á meðferðarheimilinu Lækjarbakka að Gunnarsholti í Rangárþingi ytra næsta skólaár.

Leitað er að starfsmanni sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með skjólstæðingum Lækjarbakka í Gunnarsholti ásamt stjórnendum og kennurum í Grunnskólanum Hellu.

Helstu verkefni:

  • Útbúa einstaklingsnámskrá skjólstæðinga
  • Kennsla helstu námsgreina grunnskólanemenda
  • Aðstoða skjólstæðinga sem ekki eru á grunnskólaaldri að sækja um fjarnám
  • Aðstoða skjólstæðinga sem ekki eru á grunnskólaaldri við nám í fjarnámi
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun æskileg
  • Þriggja ára háskólamenntun skilyrði
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Þekking og reynsla af meðferðarúrræðum BOFS
  • Þekking á ART og MST
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af starfi með unglingum nauðsynleg
  • Ríkuleg hæfni í mannlegum samskiptum

Hreint sakavottorð og bílpróf eru skilyrði.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknir skulu sendar á netfangið sigurjon@grhella.is

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Starfstími næsta skólaárs byrjar 1. ágúst 2026.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurjón Bjarnason, skólastjóri Grunnskólans Hellu á netfanginu sigurjon@grhella.is og Dögg Þrastardóttir forstöðumaður meðferðaheimilis Lækjarbakka í Gunnarsholti dogg@bofs.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026