Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir deildarstjóra fyrir skólaárið 2026-2027.
Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027.
Öll vinnu og kennsluaðstaða er til fyrirmyndar í nýju skólahúsnæði sem tekið verður í notkun næsta skólaár
Hlutverk og markmið
- Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans. Hlutverkið felur í sér að tryggja gæði kennslu, vellíðan nemenda og faglegt samstarf innan skólans. Deildarstjóri heyrir undir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
- Deildarstjóri vinnur náið með öðrum deildarstjórum, kennurum og stoðþjónustu.
Helstu ábyrgðarsvið
- Leiða faglegt starf kennara og stuðningsfulltrúa innan skólans.
- Skipuleggja og samræma kennslu, námsáætlanir og faglega þróun.
- Fylgja eftir námsframvindu nemenda, námsmati og einstaklingsnámskrám.
- Tryggja að stuðningsúrræði og sértæk þjónusta séu útfærð og framkvæmd í samræmi við þarfir nemenda.
- Stýra teymisfundum, stuðla að faglegri umræðu og samvinnu og sinna foreldrasamskiptum.
- Halda utan um skráningar, fundargerðir og önnur nauðsynleg gögn.
Hæfnikröfur
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Reynsla af kennslu og deildarstjórastörfum í grunnskóla.
- Góð leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp jákvætt og faglegt starfsumhverfi.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og fagleg dómgreind.
- Færni í notkun skóla- og upplýsingakerfa.
Aðstoðað verður við húsnæðisleit í nágrenninu ef þörf er á.
Umsókninni skal fylgja afrit af leyfisbréfi og greinargóð skýrsla/ferilskrá um fyrri störf umsækjanda, menntun, kennslu – og stjórnunarreynslu og þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi deildarstjóra.
- Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:
Sigurjón Bjarnason skólastjóri á netfang sigurjon@grhella.is eða í síma 488 7021 / 896 4841
Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 848 1467
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2026