Draugaganga í Bolholtsskógi 1. nóvember

Nemendur í 10. bekk Grunnskólans á Hellu og Skógræktarfélag Rangæinga bjóða til draugagöngu við hátíðarsvæðið í Bolholtsskógi sunnudaginn 1. nóvember kl. 18:00.

Þar verður hægt að ganga draugastíginn fyrir þau sem þora og að göngu lokinni verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki.

Öllum er velkomið að mæta og taka þátt í skemmtilegri og örlítið óhugnanlegri kvöldstund í skóginum.

Komið og gangið draugastíginn – ef þið þorið!