Draugaganga í Bolholtsskógi 9. nóvember

Skógræktarfélag Rangæinga og nemendur í Grunnskólanum á Hellu bjóða gestum að ganga draugastíginn í Bolholtsskógi sunnudaginn 9. nóvember.

Viðburðurinn hefst kl. 17:30 og að göngu lokinni verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki.

Hér er tengill á viðburðinn á Facebook - endilega merkið við mætingu svo hægt sé að áætla fjöldann nokkurn veginn.

Draugaganga í Bolholtsskógi var haldin í fyrsta skipti í nóvember í fyrra og tóks vonum framar í afar fallegu vetrarveðri. Skemmtileg framtak hjá Skógræktarfélaginu sem lífgar upp á skammdegið.

Hér eru nokkrar myndir frá viðburðinum í fyrra:

Frá draugagöngunni í fyrra