Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur til liðs við IceBAN

Eignarhaldsfélag Suðurlands (EFS) hefur formlega gengið til liðs við IceBAN, tengslanet englafjárfesta á Íslandi. Með samstarfinu skapast ný tækifæri fyrir frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki á Suðurlandi, þar á meðal í Rangárþingi ytra, til að komast í samband við fjárfesta og afla fjármagns til frekari uppbyggingar og vaxtar.

Aukinn aðgangur að fjármagni og fjárfestum

Eignarhaldsfélag Suðurlands hefur um árabil stutt við atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Suðurlandi með fjárfestingum í fjölbreyttum verkefnum. Félagið tekur þátt í bæði stórum og smáum verkefnum, meðal annars með hlutafjárframlagi eða skuldabréfum sem breyta má í hlutafé.

Við fjárfestingar leggur EFS áherslu á arðsemi og áhættudreifingu og tekur að jafnaði ekki meira en fjórðungshlut í einstökum fyrirtækjum, meðal annars með það að markmiði að tryggja sjálfstæði þeirra og heilbrigðan rekstur.

Með aðildinni að IceBAN styrkist enn frekar sá vettvangur sem stendur sunnlenskum frumkvöðlum til boða.

Tengir frumkvöðla og englafjárfesta

IceBAN vinnur að því að efla englafjárfestingar á Íslandi og skapa vettvang þar sem frumkvöðlar og fjárfestar geta komið saman. Með samstarfinu fá nýsköpunarverkefni á Suðurlandi aukinn sýnileika og betri möguleika á að komast í samband við fjárfesta sem leita að nýjum fjárfestingartækifærum.

Frumkvöðlum gefst jafnframt kostur á að taka þátt í sérstökum kynningarviðburðum IceBAN, sem haldnir eru fjórum sinnum á ári. Þar fá þeir tækifæri til að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum auk þess sem sérfræðingar IceBAN veita leiðsögn við gerð kynninga og fjárfestingargagna.

Frumkvöðlar hvattir til að nýta tækifærið

Frumkvöðlar í Rangárþingi ytra og annars staðar á Suðurlandi sem vinna að nýjum hugmyndum, lausnum eða uppbyggingu fyrirtækja eru hvattir til að kynna sér þann vettvang sem samstarfið opnar.

Hægt er að skrá verkefni í umsóknarkerfi IceBAN og hefst þá ferli sem miðar að því að tengja viðkomandi verkefni við fjárfesta og aðra aðila sem geta stutt við næstu skref í uppbyggingu þess.

Englafjárfestar (e. angel investors) eru einstaklingar sem leggja eigið fjármagn, sérþekkingu og reynslu í nýsköpunar- og sprotafyrirtæki á fyrstu stigum rekstrar, oftast gegn eignarhlut í viðkomandi fyrirtæki.