Einn, tveir og rækta!

Matjurtagarðurinn í Aldamótaskógi er klár fyrir sumarið. Þar geta áhugasamir íbúar afmarkað sér reit og ræktað grænmeti. Sveitarfélagið sér um tætingu reitanna og greiða íbúar ekkert fyrir afnot.

Hvernig skal bera sig að ?

  1. Fara á staðinn
  2. Finna lausan reit í hentugri stærð sem búið er að tæta
  3. Afmarka hann með lágum staurum og bandi
  4. Gæta þess að hafa göngubraut á milli garða
  5. Merkja sér reitinn
  6. Setja niður
  7. Hirða svæðið yfir sumartímann og njóta uppskerunnar
  8. Taka upp staura og bönd að hausti svo hægt sé að tæta aftur að vori

Við minnum á að ganga þarf vel um svæðið og virða aðra garða. Í lok sumars þurfa þau sem nýta svæðið að fjarlægja allt rusl af svæðinu og taka upp staura og bönd svo allt sé tilbúið fyrir tætingu næsta árs.

Nánari upplýsingar veitir Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra í s: 487-5284.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?