Stór og öflugur hópur sem keppti á Landsmóti hestamanna í sumar.
Stór og öflugur hópur sem keppti á Landsmóti hestamanna í sumar.
Á sunnudag fór fram glæsileg Uppskeru – og verðlaunahátíð æskunnar hjá Hestamannafélaginu Geysi í Rangárhöllinni fyrir árið 2022.
 
Farið var yfir æskulýðsstarfið síðastliðið ár og komandi viðburðir og reiðnámskeið kynnt. 
 
Góðir gestir komu á staðinn en Sigurður Sigurðarson, knapi ársins hjá Geysi og Kristján Árni Birgisson, ungmenni ársins hjá Geysi, komu á hátíðina og sögðu skemmtilega frá hvernig þeirra hestamennska byrjaði og hvað þeim finnst skipta mestu máli til að ná árangri í keppni.
 
Þau börn og unglingar sem að kepptu fyrir hönd Geysisá Landmóti hestamanna sem var síðastliðið sumar á Hellu hlutu viðurkenningu. Geysir átti þar gríðarlega öflugan og fjölmennan hóp sem stóð sig frábærlega.
 
Verðlaunaafhending fyrir Afreksbikarinn í barna og unglingaflokki fór fram en í þetta sinn hlaut Fríða Hildur Steinarsdóttir bikarinn í barnaflokki og Sigurður Steingrímsson bikarinn í unglingaflokki. Þau stóður sig bæði frábærlega í keppni á árinu 2022 en Fríða var m.a. í 2 sæti í barnaflokki á Landmótinu og Sigurður stóð uppi sem sigurvegari í unglingaflokki á Landsmótinu.
 
Boðið var uppá pizzuveislu, kaffi og djús.
 
Skemmtilegur dagur og framtíðin er björt með alla þessa flottu knapa hjá hestamannafélaginu Geysi.
 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?