Guðmundur Jónasson formaður Umf. Heklu og Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, undirrit…
Guðmundur Jónasson formaður Umf. Heklu og Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, undirrituðu samninginn.

Á dögunum var endurnýjaður samstarfssamningur við Ungmennafélagið Heklu. Ungmennafélagið var stofnað þann 26. júlí 1908 og er með elstu Ungmennafélögum landsins. Félagið heldur úti fjölbreyttum æfingum fyrir yngri aldurshópa og má þar nefna frjálsar íþróttir, línuskauta, körfubolta, tækwondo, fimleika og blak svo eitthvað sé nefnt. félagsins hefur leikið á Íslandsmóti.

Samningnum er ætlað að efla samstarf milli sveitarfélagsins Rangárþings ytra og Umf Heklu. Meginmarkmið er að viðhalda öflugu og fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir grunnskólabörn í sveitarfélaginu og treysta starfsemi Umf. Heklu. Iðkendur hjá Umf. Heklu í Rangárþingi ytra á aldrinum 18 ára og yngri erum um 160.

Samningurinn hljóðar uppá árlega greiðslu til Umf. Heklu að upphæð 2.750.000 kr auk allrar aðstöðu sem félagið þarf til íþróttaiðkunar í samráði við forstöðumann íþróttamiðstöðvar. Samningurinn tekur við af eldri samning sem rann út í lok árs 2019.

Viðbygging við íþróttahúsið sem hýsir m.a. áhaldageymslu hefur elft starfsemi Umf. Heklu sem og auka salur sem þar er.

Það voru þeir Guðmundur Jónasson formaður Ungmennafélagsins Heklu og Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra sem undirrituðu samninginn.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?