Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 14. desember n.k frá kl. 12-15 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.
Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu er um að ræða stafafuru. Við verðum að auki með á plani tilhöggið greni og furu. Óski fólk efir að koma og velja sér sjálft greni er hægt að hafa samband og finnum út úr því. Sem fyrr er hægt að panta tré og er afhending eftir samkomulagi.
Nú verðum við einnig með tröpputré og borðtré til sölu.
Boðið verður uppá hressingu í skóginum.
Tilvalið tækifæri til að njóta útiveru, versla í heimabyggð og styðja við skógræktina. Hlökkum til að sjá ykkur!
Upplagt er að fylgjast með facebook-síðu Skógræktarfélags Rangæinga en þar eru settar inn fréttir frá félaginu.
Allar nánari upplýsingar eru í síma: 8692042.
Verðskrá jólatrjáa:
Jólatré:
0-100 cm: 5000
100-150 cm: 7000
150-200 cm: 10.000
200-250 cm: 12.000
250 +: 20.000
• Minni: 5000
• Stærri: 6000
• 0-40 cm: 2500
• 40 cm +: 3500
kt: 600269-4969
reikn: 0182-26-20081