Framkvæmdir á Laugalandi: staðan í dag og framtíðarsýn
Undanfarin misseri hefur sveitarfélagið staðið í framkvæmdum við endurbætur á húsnæði grunn- og leikskólans á Laugalandi. Markmiðið er viðhald og endurbætur húsnæðisins, bætt vinnuaðstaða starfsfólks og nemenda þar sem hljóðvist, lýsing og loftræsting eru til fyrirmyndar.
Þegar er búið að innrétta og taka í notkun þriðju leikskóladeildina við leikskólann og verður framkvæmdum við hana að fullu lokið í sumar.
Hvað er framundan: sumarið 2026
Verkefnin eru margvísleg og snerta flesta hluta skólahúsnæðisins:
- Leikskóladeild í vesturenda:
- Endurhönnun er lokið og framkvæmdir munu fara fram í sumar.
- Gluggar á austurhlið elsta hluta hússins verða endurnýjaðir.
- Unnið verður í loftræstingu, lýsingu og hljóðvist:
- Til að bæta vinnuumhverfi starfsfólks og nemenda.
- Íþróttasalurinn:
- Íþróttasalurinn fær andlitslyftingu með bættri lýsingu, nýjum aðalkörfum og nýju skiptitjaldi.
- Unnið verður að færslu og endurröðun á kennarastofu.
- Viðhald innanhúss:
- Endurnýjun á gólfefnum á göngum og anddyrum.
- Viðhald utanhúss:
- Farið verður í málningarvinnu á þökum til að verja byggingarnar og fegra umhverfið.
Framtíðarsýn: Sambærileg gæði á Hellu og Laugalandi
Þessar aðgerðir eru hluti af stærri framtíðarsýn sveitarfélagsins. Unnið er að því að upplifun nemenda og starfsfólks af húsnæðinu á Laugalandi sé sambærileg við það sem gerist á Hellu.
Staða mála: heildarsýn
Mikilvægt er að undirstrika að frumdrög heildarhönnunar sem kynnt voru í maí 2024 eru enn í vinnslu og eiga eftir að fara í gegnum frekari rýni og kostnaðargreiningu innan stjórnkerfisins og í samráði við starfsfólk og foreldra.