Ný aðgangskort að Strönd komin í umferð

Aðgangskortin fyrir sorpeyðingu 2024 eru komin og má nálgast þau á skrifstofu Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu og á móttökustöðinni Strönd.

Aðgangskortið er jafnframt klippikort sem inniheldur heimild til losunar á allt að 5 rúmmetrum af gjaldskyldum úrgangi.
Fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu sem greiða sorpeyðingargjald fá afhent eitt klippikort á ári.

Klippikortin veita aðgang að móttökusstöðinni á Strönd og því er nauðsynlegt að hafa klippikortið ávallt meðferðis hvort sem komið er með gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang. Hvert klipp á klippikortinu er upp á 0,25 m3 af gjaldskyldum úrgangi. Til viðmiðunar samsvarar 240l tunna eða fullur svartur ruslapoki 0,25 m3.

Hér má finna allar nánari upplýsingar um aðgangskortin/klippikortin og gjaldskyldan úrgang.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?