Erindi frá Veraldarvinum
Við höfum mikinn áhuga á samstarfi við ykkur í í Rangárþingi Ytra og getum sent ykkur hópa hvenær sem er á árinu 2014.
 
Veraldarvinir eru íslensk félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Samtökin voru stofnuð í júní 2001 og hafa frá upphafi haft umhverfismál í öndvegi. Markmið samtakanna er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og betri umgengni manna við umhverfi sitt. Við nálgumst markmið okkar með alþjóðlegu samstarfi og sjálfboðaliðastarfi og skipulagningu umhverfis- og menningartengdra verkefna í samvinnu við sveitarfélög, fyrirtæki, ferðaþjónustuaðila og frjáls félagasamtök. Veraldarvinir eru brautryðjendur í skipulagningu slíkra verkefna hér á Íslandi.
 
Frá árinu 2003 höfum við tekið á móti 8.820 erlendum sjálfboðaliðum en árið 2013 voru þeir 1.520 og skiptast í 129 fjölbreytileg verkefni vítt og breytt um landið.
 
•Hóparnir eru fjölþjóðlegir og eru yfirleitt 6 til 20 manns í hverjum hópi.
•Þau dvelja í flestum tilvikum í tvær vikur í senn og vinna sex til átta tíma á dag fimm daga vikunnar,
•þau greiða sjálf undir sig til Íslands.
•þeir sem unnið er fyrir sjá hópunum fyrir fæði og húsnæði en sjálfboðaliðarnir elda sjálfir.
•Gisting í skólum eða félagsheimilum þar sem sofið er á dýnum á gólfi er fullboðleg gisting.
•Þetta er yfirleitt harðduglegt fólk á aldrinum 20 - 30 ára en aldursmörk eru frá 18 ára og upp úr. Í ár var elsti þátttakandinn 76 ára.
•Sjálfboðaliðarnir tryggja sig sjálfir.
•Veraldarvinir útvega hópstjóra sem stýra hópunum, yfirleitt eru einn til tveir hópstjórar í hverjum hóp.
•Verkefnin eru að af ýmsu tagi til að mynda plöntun, grisjun, hreinsun, málningarvinna, lagning og viðgerð göngustíga, stikun og hverskyns vinna sem tengist fegrun og verndun umhverfisins.
 
Á liðnum árum höfum við meðal annarra verka plantað 995.000 trjám og hreinsað 2.840 km af strandlengju Íslands.
Sem dæmi um menningartengd verkefni sem við höfum unnið að á síðustu árum má nefna:
  • Blómstrandi dagar í Hveragerði
  • Ljósanótt í Reykjanesbæ
  • Menningarnótt í Reykjavík
  • Danskir dagar í Stykkishólmi
  • Polar festival á Stöðvarfirði
  • Síldarævinýri á Siglufirði
  • Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
  • Bindindismót í Galtalæk
  • Unglistahátíð á Hvammstanga
  • Handverkshátíð í Hrafnagili
  • Markaðsdagur í Bolungarvík
  • Víkingahátíð í Hafnarfirði
  • Víkingahátíð á Þingeyri
  • Iceland airwaves í Reykjavík
  • Ástarvika í Bolungarvík
  • Sumar á Selfossi
  • RIFF kvikmyndahátíð í Reykjavík
  • Bryggjuhátíð á Drangsnesi
  • Kátir dagar á Þórshöfn
  • Lunga á Seyðisfirði
  • Aldrei fór ég suður á Ísafirði
  • Bræðslan Borgarfirði Eystri
 
Veraldarvinir hafa komið að fjölda umhverfisverkefna um land allt á liðnum árum. Árið 2008 fengum við umhverfisverðlaun LÍÚ fyrir hreinsun strandlengju Íslands  og árið 2009 fékk félagið tilnefningu til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu ásamt öðrum aðilum.
 
Hafið samband við okkur ef þið sjáið grundvöll fyrir samstarfi á árinu 2014, við erum tilbúin til þess að hitta ykkur hvenær sem þið viljið.
 
Virðingarfyllst,
 
Þórarinn Ívarsson, framkvæmdastjóri
Veraldarvinir – worldwide Friends Iceland Hverfisgata 88
101 Reykjavík
s. 5525214 og gsm 8682324
www.veraldarvinir.is
veraldarvinir@veraldarvinir.is
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?