Ljósmynd: Þráinn Gíslason.
Ljósmynd: Þráinn Gíslason.

Fallegur réttardagur var í Reyðarvatnsréttum á laugardag þegar Rangvellingar komu þar saman til réttarstarfa. Fé kom fallegt af Rangárvallaafrétti og Ársæll Jónsson bóndi stýrði réttarstörfum að venju.

Réttarhald á Reyðarvatni á sér langa sögu en gömlu hlöðnu Reyðarvatnsréttirnar voru teknar í notkun árið 1892. Síðar var réttarhaldið fært í núverandi réttir, en hefðin hefur haldist óslitin á svæðinu í meira en 130 ár.

Það setur sérstakan svip á réttardaginn hversu margir koma ríðandi til rétta og halda aftur heim á hestum að réttarstörfum loknum. Sú hefð hefur gengið frá einni kynslóð til annarrar og lifir greinilega góðu lífi.

Loftmynd: Þráinn Gíslason.