Feykisterk fimmgangskeppni í Suðurlandsdeildinni

Í gærkvöldi fór fram feykisterk fimmgangskeppni í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu. Eftir frábærar sýningar og magnaða skeiðspretti var það lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sem stóð uppi sem sigurvegari en knapar þess lið lentu í 1. og 13. sæti í flokki áhugamanna og 2. og 14. í flokki atvinnumanna.

Í flokki áhugamanna sigraði Hafþór Hreiðar Birgisson á Þór frá Meðalfelli með einkunnina 6,43. Í 2. sæti varð Sigurður Halldórsson á Gusti frá Efri-Þverá með einkunnina 6,24 og skammt á eftir í 3. sætinu voru Sanne Van Hezel og Völundur frá Skálakoti með 6,21.

Í flokki atvinnumanna sigruðu Selina Bauer og Páfi frá Kjarri með einkunnina 7,00 eftir hörkukeppni við Hans Þór Hilmarsson og Sindra frá Hjarðartúni sem urðu í 2. sæti með einkunnina 6,98. Í 3. sæti urðu Sigurður Sigurðarson og Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 með 6,79.

Í liðakeppninni náði Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún í 85 stig í kvöld en þar á eftir komu Byko með 78 stig og Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð með 73 stig. Lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns saxar því aðeins á Byko í toppsætinu í liðakeppninni en eftir þrjár fyrstu greinarnar í Suðurlandsdeildinni er Byko í 1. sæti með 268,5 stig, þá lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns með 255,5 stig og í þriðja sæti lið Krappa með 225,5 stig. Það er þó nóg af stigum eftir í pottinum, þar sem á lokakvöldinu verður keppt í tveimur greinum, tölti og skeiði.

Staðan í liðakeppninni að loknum fyrstu þremur greinum

Sæti Lið Stig
1. Byko 268,5
2. Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 255,5
3. Krappi 225,5
4. Smiðjan Brugghús 216,5
5. Nonnenmacker 213
6. Slippfélagið 188
7. Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 169
8. Töltrider 156
9. Vesturkot 145
10. Húsasmiðjan 143
11. Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 137,5
12. MúrX/Klúbbhús 126,5
13. Efsta-Sel 107,5
14. Fet 77,5

 

Síðasta keppniskvöld Suðurlandsdeildarinnar verður utandyra á Rangárbökkum þann 26. apríl og hefst keppni kl. 18:00.


Selina Bauer og Páfi frá Kjarri. Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson
Hafþór Hreiðar Birgisson og Þór frá Meðalfelli. Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?