Firmakeppni Rangárvalladeildar Geysis

Verður haldin á Gaddstaðaflötum sumardaginn fyrsta þann 21. apríl. Ef veður leyfir verður keppnin úti, annars inni í höll. Kl. 13:00 verður farin hópreið frá hesthúsahverfinu á Hellu, riðið að Lundi og tekin nokkur lög fyrir viðstadda. Að því loknu verður riðið niður á völl þar sem keppni hefst kl. 14:00. Byrjað verður á pollaflokki, svo barnaflokki, unglingaflokki og Karla- og Kvennaflokki. Eftir keppni verður boðið upp á grillaðar pylsur í hesthúsahverfinu.Það er hægt að skrá sig á staðnum eða í síma 840-7109, Sigurborg. Við hvetjum alla til að taka þátt í þessum degi með okkur,

og sérstaklega bæjarbúa til að fylgjast með hópreiðinni, taka lagið með okkur á Lundi og fylgjast svo með keppninni.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?