Firmakeppni Rangárvalladeildar Geysis á sumardaginn fyrsta

Firmakeppni Rangárvalladeildar Geysis var haldin á sumardaginn fyrsta. Keppnin hófst að venju með hópreið frá hesthúsahverfinu á Hellu að dvalarheimilinu Lundi þar sem tekin voru nokkur lög fyrir heimilisfólk. Því næst var riðið frá Lundi og niður að Rangárbökkum þar sem firmakeppnin fór fram. Veðrið lék við hvern sinn fingur og var keppnin glæsileg. Niðurstöður má sjá hér að neðan og eru svo fleiri myndir aðgengilegar hér.

Þulur var Ágúst Sigurðsson, dómari Albert Jónsson og ritari Anne Bau.


Sigurvegari í kvennaflokk, Veronika Eberl á Fló frá Búð.

Pollaflokkur (ekki raðað í sæti).
Bryndís Anna Gunnarsdóttir á Vissu frá Smáhömrum.
Lovísa Rós Pétursdóttir á Bryðju frá Varmadal.
Unnur Kristín Sigurðardóttir á Fimmí frá Hjallanesi.

Barnaflokkur.
1. Svala Norðdal á Hrólfi frá Hafsteinsstöðum
2. Helga Melsteð á Alex frá Kópavogi
3. Sigrún Arna Friðþjófsdóttir á Ásvör frá Hamrahóli

Unglingaflokkur
1. Ásrún Ásta Ásmundardóttir á Mósa frá Lindartúni
2. Írena Rós Haraldsdóttir á Seiglu frá Húnakoti
3. Álfheiður Fanney Ásmundsdótttir á Skutlu frá Hrafntóftum 2

Kvennaflokkur
1. Veronika Eberl á Fló frá Búð
2. Emilie L. Norub á Moldstjörnu frá Hvítanesi
3. Anna Gunna Jónsdóttir á Tenór frá Litla-Dal

Karlaflokkur
1. Friðþjófur Örn Vignisson á Skrá frá Lýtingsstöðum
2. Magnús Kristjánsson á Spuna frá Jaðri
3. Ingi Hlynur Jónsson á Þulu frá Hoftúni
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?