Fjárhagsáætlun Rangárþings ytra 2022-2025 samþykkt

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9. desember s.l. fjárhagsáætlun fyrir sveitarfélagið fyrir 2022-2025. Sveitarstjórn notaði tækifærið og þakkaði starfsfólki sveitarfélagsins fyrir mjög gott starf við undirbúning og gerð fjárhagsáætlunarinnar og sendi jafnframt öllu starfsfólki sveitarfélagsins þakkir fyrir vel unnin störf á árinu með ósk um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.

Áætlaðar heildartekjur Rangárþings ytra (A og B hluta) árið 2022 nema alls 2.527 mkr. Rekstrargjöld eru áætluð 2.062 mkr. og þar af reiknaðar afskriftir 130 mkr. Fjármagnsgjöld eru áætluð 108 mkr. Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 227 mkr.

Veltufé frá rekstri er 308 mkr. Í eignfærða fjárfestingu A og B hluta verður varið 560 mkr. og afborgun lána 181 mkr. Gert er ráð fyrir eignasölu að upphæð 156 mkr og nýrri lántöku að upphæð 200 mkr. á árinu 2022 vegna hönnunar og framkvæmda við skólasvæði á Hellu. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 2022 alls 1.979 mkr og eigið fé 2.503 mkr. Eignir í árslok eru áætlaðar 4.482 mkr.

Framlegðarhlutfall 2022 er áætlað 18,4

Veltufjárhlutfall 2022 er áætlað 0,71

Eiginfjárhlutfall 2022 er áætlað 0,52

Rekstrarjöfnuður þriggja ára skv. sveitarstjórnarlögum er áætlaður jákvæður um 366 mkr.

Reiknað skuldaviðmið samkvæmt sveitarstjórnarlögum verður 62,5% á árinu 2022 og skuldahlutfallið 78,3%.

Fylgiskjöl:

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?