Sigöldugljúfur
Sigöldugljúfur

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árin 2023-2026 á fundi sínum 14. desember. Góð samvinna var á milli kjörinna fulltrúa við gerð áætlunarinnar.

Sveitarstjórn hefur við fjárhagsáætlunargerðina reynt að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og miða almennt við verðlagshækkanir. Þá var tekin ákvörðun um að lækka álagningarhlutfall A-hluta fasteignagjalda úr 0,36 í 0,33 og fráveitugjalda úr 0,25 í 0,22 til að koma til móts við fasteignaeigendur vegna hækkunar á fasteignamati.

Varðandi lykiltölur úr fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir að heildartekjur Rangárþings ytra (A og B hluta) árið 2023 nemi alls 2.827 mkr. Rekstrargjöld eru áætluð 2.398 mkr. og þar af reiknaðar afskriftir 142 mkr. Fjármagnsgjöld eru áætluð 163 mkr. Gert er ráð fyrir fjárfestingu að fjárhæð 913 mkr. Skuldaviðmið verði 68,5% og skuldahlutfall 88,25. Rekstrarniðurstaða er í áætluð jákvæð um 123 mkr. Fjárhagsáætlunina má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fjárhagsáætlun 2023-2026

Áfram er gert ráð fyrir heimgreiðslum sem valkost fyrir foreldra barna að tveggja ára aldri, leikskólagjöld eru með þeim lægstu á landinu og grunnskólamáltíðir eru fríar. Að auki var samþykkt að koma á frístundastyrk fyrir börn frá 6-16 ára aldri, 50.000 kr á barn.

Allt þetta gerir Rangárþing ytra að ákjósanlegum stað til að búa á.

Á næsta ári verður haldið áfram með byggingu nýs grunn- og leikskóla á Hellu, en það er stærsta framkvæmd sveitarfélagsins frá stofnun þess. Ráðgert er að taka í notkun fyrsta hluta skólahúsnæðis fyrir næsta haust og hefja jafnframt framkvæmdir við annan hluta. Gríðarleg uppbygging er í sveitarfélaginu öllu og er því eftirspurn eftir lóðum töluverð, hvort sem er eftir íbúðar- eða atvinnulóðum.

Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?