Fjárhagsáætlun samþykkt í sveitarstjórn

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árin 2024-2027 á fundi sínum 13. desember. Góð samvinna var á milli kjörinna fulltrúa við gerð áætlunarinnar.

Sveitarstjórn hefur við fjárhagsáætlunargerðina reynt að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og miða almennt við verðlagshækkanir og sumar gjaldskrár óbreyttar. Þá var tekin ákvörðun um að lækka álagningarhlutfall A-hluta fasteignagjalda úr 0,33 í 0,30 og fráveitugjalda úr 0,22 í 0,21 til að koma til móts við fasteignaeigendur vegna hækkunar á fasteignamati.

Varðandi lykiltölur úr fjárhagsáætlun 2024 er gert ráð fyrir að heildartekjur Rangárþings ytra (A og B hluta) árið 2024 nemi alls 3.557 mkr. Rekstrargjöld eru áætluð 2.984 mkr. og þar af reiknaðar afskriftir 165 mkr. Fjármagnsgjöld eru áætluð 214 mkr. Gert er ráð fyrir fjárfestingu að fjárhæð 1.247 mkr. Skuldaviðmið verði 79,1% og skuldahlutfall 99,1. Rekstrarniðurstaða er í áætluð jákvæð um 194 mkr. Fjárhagsáætlunina má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fjárhagsáætlun 2024-2027 

Áfram er gert ráð fyrir heimgreiðslum sem valkost fyrir foreldra barna að tveggja ára aldri og frístundastyrk. Leikskólagjöld eru með þeim lægstu á landinu og grunnskólamáltíðir eru fríar.

Allt þetta gerir Rangárþing ytra að ákjósanlegum stað til að búa á.

Á næsta ári verður haldið áfram með byggingu nýs grunn- og leikskóla á Hellu, en það er stærsta framkvæmd sveitarfélagsins frá stofnun þess. Ráðgert er að vinna við annan áfanga verði langt komin á næsta ári. Þá er gert rráð fyrir að byrjuð verði á vinnu við hönnun og gerð gervigrasvallar á Hellu. Gríðarleg uppbygging er í sveitarfélaginu öllu og því mikil tækifæri framundan á nýju ári.

Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?