Drífa Nikulásdóttir fjallkona ásamt fylgdarmeyjunum Eldey Yrsu Sveinbjörnsdóttur og Hrafneyju Dís Ma…
Drífa Nikulásdóttir fjallkona ásamt fylgdarmeyjunum Eldey Yrsu Sveinbjörnsdóttur og Hrafneyju Dís Marinósdóttur.

Þjóðhátíðardeginum 17. júní var fagnað með glæsibrag á Hellu að venju, þrátt fyrir að veðrið hafi á köflum sýnt sínar blautari hliðar. Dagskráin hófst við Dvalarheimilið Lund þar sem tilvonandi 10. bekkingar Helluskóla sáu um hina árlegu blöðrusölu.

Ungmennin létu veðrið ekki aftra sér og leiddu skrúðgöngu frá Lundi að íþróttahúsinu með hjólbörur sem fluttu hátalara með hátíðlegri tónlist. Hátalarinn var vandlega varinn með svörtum ruslapoka til að tryggja að hugsanlegar skúrir yllu engu tjóni. Sveitarfélagið vill færa þessum duglegu ungmennum sérstakar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag til hátíðarhalda dagsins.

Tilvonandi 10. bekkingar héldu áfram störfum sínum yfir daginn en þau og foreldrar þeirra sáu um hátíðarkaffið í íþróttahúsinu. Jafnframt rak hópurinn sjoppu til fjáröflunar fyrir útskriftarferð sína að ári.

Á hátíðardagskránni flutti Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra, hátíðarræðu dagsins og Sindri Snær Brynjólfsson flutti ræðu nýstúdents. Fjallkonan í ár var Drífa Nikulásdóttir og henni til halds og trausts voru þær Eldey Yrsa Sveinbjörnsdóttir og Hrafney Dís Marinósdóttir, báðar prúðbúnar í tilefni dagsins.

Styrkþegar menningarstyrks Rangárþings ytra tóku við styrkjum sínum við hátíðlega athöfn. Þá sýndi leiklistarhópurinn Innblástur brot úr sýningu sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói í haust og nemendur á dansnámskeiði Helgu Sunnu heilluðu gesti með líflegu dansatriði. Að lokum sló Hófí Samúels botninn í dagskrána með skemmtilegum ukulele-samsöng sem vakti góð viðbrögð meðal gesta.

Hoppukastalarnir voru á staðnum að venju og nutu mikilla vinsælda hjá börnum á öllum aldri sem skemmtu sér þar fram eftir degi.

Rangárþing ytra vill færa öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar innilegar þakkir, sem og öllum þeim fjölmörgu gestum sem lögðu leið sína á hátíðarhöldin og gerðu daginn eftirminnilegan.

Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.