18. september 2026
Fjölmennt var í Landréttum í Áfangagili í gær, fimmtudag, þar sem réttað var að loknum fimm daga göngum á Landmannaafrétti. Góð stemning var í réttunum og gengu réttarstörf vel fyrir sig. Kvenfélagið Lóa sá um veitingar og gætti þess að enginn færi svangur frá Áfangagili.
Að réttarstörfum loknum var síðan haldið í skemmtilega hefð þegar Bændaglíman fór fram. Þar reyndu vaskir glímumenn með sér og tókust á við góðar undirtektir viðstaddra.
Næst verður réttað í Reyðarvatnsréttum á morgun, laugardag, þegar Rangvellingar koma þar saman til réttarstarfa sem hefjast kl. 13:00.






