Fjölmenningarhátíð í Grunnskólanum á Hellu

Það var líf og fjör í Grunnskólanum á Hellu þegar nemendur héldu glæsilega fjölmenningarhátíð þar sem ólíkir menningarheimar mættust.

Nemendur höfðu lagt mikla vinnu í undirbúning hátíðarinnar. Þau skreyttu skólann, kynntu ýmis lönd og menningu þeirra, bökuðu og útbjuggu fjölbreyttan mat sem gestir fengu að smakka. Margir klæddust einnig þjóðbúningum og öðrum litríkum búningum.

Boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði, meðal annars dans og aðrar uppákomur sem nemendur höfðu undirbúið. Gestir gátu gengið á milli kynningarbása, fræðst um ólík lönd og notið matar og skemmtunar.

Hátíðin var vel sótt og skapaðist skemmtileg stemning þar sem nemendur, fjölskyldur og starfsfólk komu saman og fögnuðu fjölbreytileikanum.

Frábært framtak hjá nemendum og starfsfólki Grunnskólans á Hellu sem sýnir hversu auðgandi fjölbreytt menning er fyrir skólasamfélagið.