
Stóra upplestrarkeppnin fer fram í Vestmannaeyjum 13. maí næstkomandi. Það eru nemendur í 7. bekk sem etja kappi og les hver nemandi einn bókartexta og eitt ljóð.
Allir þátttakendur stóðu sig með eindæmum vel og ber að hrósa þeim öllum fyrir dugnað við undirbúning og hugrekkið sem það krefst að stíga á stokk fyrir framan áhorfendur og dómnefnd.
Bæði Laugalandsskóli og Grunnskólinn á Hellu hafa valið fulltrúa sína í keppnina en venjan er að hver grunnskóli haldi undankeppni og sendi tvo fulltrúa í aðalkeppnina.
Hvor skóli valdi tvo aðalmenn og einn varamann og voru úrslitin eftirfarandi:
Laugalandsskóli:
Aðalmenn: Tinna Lind Brynjólfsdóttir og Anna Sigríður Erlendsdóttir.
Varamaður: Aron Dyröy Guðmundsson.
F.v. Anna Sigríður, Tinna Lind og Aron / mynd frá Laugalandsskóla
Meira má lesa um keppnina í Laugalandsskóla á heimasíðu skólans með því að smella hér.
Grunnskólinn á Hellu
Aðalmenn: Sigurður Þór Grétarsson og Bóas Óli Pétursson.
Varamaður: Viktor Skagfjörð Jónsson.
Fremsta á myndinni má sjá efstu þrjá frá Helluskóla; Bóas Óla, Viktor og Sigurð. Aftan við þá stendur hluti bekkjarfélaga þeirra í 7. bekk.
Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með framgöngu þeirra í Vestmannaeyjum þann 13. maí.