Flokkstjórar og sláttufólk óskast í sumarstörf á Hellu

Auglýst er eftir flokkstjórum vinnuskóla og starfsfólki til að sinna slætti á görðum eldri borgara og á opnum svæðum sveitarfélagsins.

Vinna flokkstjóra:

Flokkstjórar hafa umsjón með unglingum á aldrinum 13–16 ára við fjölbreytt umhverfistengd verkefni.

  • Flokkstjórar þurfa að sýna gott fordæmi hvað varðar stundvísi og vinnusemi.
  • Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.
  • Bílpróf er skilyrði.

Umsjónaraðilar opinna svæða:

Umsjón opinna svæða felur í sér slátt á görðum eldri borgara og á opnum svæðum ásamt annarri umhirðu opinna svæða.

  • Bílpróf er skilyrði og vinnuvélaréttindi æskileg.
  • Rík krafa er gerð um stundvísi og vinnusemi.
  • 17 ára og eldri geta sótt um

Hægt er að sækja um ofangreind störf með því að smella hér.

Um er að ræða skemmtilega sumarvinnu með góðu og öflugu fólki.

Frekari upplýsingar veitir Hjalti Tómasson á hjalti@ry.is eða í síma 857 0008.

Umsóknareyðublaðið má nálgast hér.