Flughátíðin - Allt sem flýgur

Flughátíðin Allt sem flýgur         

Hin árlega flughátíð Flugmálafélags Íslands verður haldin á Hellu helgina 8.-10. júlí n.k. Hátíðin snýst að vanda um að kynnast ólíkum flugsportum, fljúga, fylgjast með flugi, tala um flug og njóta samveru með vinum og fjölskyldu.

Dagskráin hefst föstudaginn 8. Júlí kl. 12 en þá munu fyrstu gestirnir mæta. Flestir setja upp tjöld, koma´ser vel fyrir, grilla með vinum og njóta kvöldsins.

Hátíðin hefst formlega á laugardag kl. 12 þegar flugvélar byrja að fljúga um svæðið. Kl. 13-15 verður kynning á flugsportum þar sem allt verður á flugi – allt frá flugvélum, þyrlum, fallhlífarstökkvurum, listflugvélum, fisum, svifflugum og drónum yfir í svifvængi, flugdreka, flugmódel, karamellukast úr lofti fyrir börnin, útsýnisflug o.fl. Um kvöldið verður síðan grillveisla og kvöldvaka. Alla helgina verður m.a. frisbígolf á svæðinu, ísbíllinn mætir, pylsur í boði Atlantsolíu, gjafir fyrir börn o.fl.

Sjáumst á flughátíð!

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?