Förgun jólatrjáa

Við hjá Skógræktarfélagi Rangæinga viljum vekja athygli þeirra sem keyptu lifandi „jólatré“ af félaginu eða öðrum að koma trjánum á grendarstöð hjá sveitarfélögunum.

Í Rangárþingi ytra er grendarstöð staðsett austan við gamla hesthúsahverfið á Hellu. Þar verður trjánum safnað saman og síðan kurluð næsta vor og efnið nýtt í göngustíga og beð eins og t.d í Aldamótaskógi. Með þessu er náð hámarks nýtni á afurðinni.

Mikilvægt er að enginn annar úrgangur sé settur með trjánum, aðeins tré og stærri greinar. Ánægjulegt er að geta þess að nú leggst Rangárþing ytra á árarnar með Skógræktarfélagi Rangæinga og ætlar að bæta umgengni á trjáviði sem fellur til hjá sveitarfélaginu og hefur hingað til verið keyrður niður í syðri malarnámuna í Aldamótaskógi.

Á myndinni má sjá reitinn sem hægt er að setja jólatrén á

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?