Forval vegna skipulags og umhverfishönnunar við Landmannalaugar
Sveitarfélagið Rangárþing ytra efnir til forvals fyrir hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun
Landmannalaugasvæðisins í samvinnu við Umhverfisstofnun og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Svæðið er innan Friðlands að Fjallabaki, um 1,7 km² og tekur yfir núverandi þjónustusvæði í
Landmannalaugum og næsta nágrenni, allt frá Grænagili og norður að Norðurnámshrauni.

Á svæðinu er m.a. gert ráð fyrir að verði eftirfarandi:
? Aðstaða Umhverfisstofnunar og gestastofa
? Gisti? og veitingaþjónusta
? Aðstaða fyrir starfsfólk, landverði og aðra eftirlitsaðila
? Aðstaða fyrir daggesti, samverustaður fyrir leiðsögufólk og hópa
? Tjaldsvæði
? Aðkomusvæði, bílastæði og rútustæði
? Endurbætt stígakerfi og aðgengi fyrir hreyfihamlaða
? Endurbætt aðstaða tengd náttúrulaug
 
Valdir verða 3 ? 4 hópar til þátttöku í samkeppninni og mun hver um sig fá greitt fyrir tillögur sínar að
ákveðinni upphæð. Skil í samkeppni verða um miðjan nóvember.
Nánari upplýsingar um skil á forvalsgögnum, framkvæmd og val á þátttakendum er að finna á vef
sveitarfélagsins (www.ry.is), Félags íslenskra landslagsarkitekta (www.fila.is) og Hönnunarmiðstöð
Íslands (www.honnunarmidstod.is). Skil á forvalsgögnum er fyrir kl. 16.00 þann 10. júlí 2014.

Skipulags? og byggingarfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?