Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, heimsóttu skólann í síðustu viku í tilefni af 30 ára afmælis leikskólans á Laugalandi. Þau hófu heimsóknina í leikskólanum þar sem börnin sungu fyrir þau nokkur lög og spurðu forsetann margra spurninga. Eftir það var farið út og nokkrar hindberjaplöntur gróðursettar. Því næst fengu forsetahjónin kynningu á grunnskólanum, heimsóttu nokkra bekki og leyfðu nemendum að spyrja þau spurninga. Í hádeginu var svo boðið upp á lambasteik með öllu tilheyrandi en þar áður sungu nemendur skólans lag Páls Óskars, „Það geta ekki allir verið gordjöss”, undir stjórn Hólmfríðar Samúelsdóttur og Einar Þór Guðmundsson spilaði á píanóið. Forsetahjónin voru mjög ánægð með heimsóknina og þökkuðu mikið vel fyrir sig áður en þau fóru.
Í frétt á vefsíðu Laugalandsskóla má sjá nokkrar myndir úr heimsókninni.
MHH/Laugalandsskóli