Þátttakendur í Ungmennaþingi 2019
Þátttakendur í Ungmennaþingi 2019

Um 40 ungmenni á aldrinum 13 – 25 ára voru saman komin Í gærkvöldi þar sem fram fór í annað sinn Ungmennaþing haldið af UngRy (Ungmennaráði Rangárþings ytra). Ungmennaþingið er vettvangur fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu til þess að koma saman og koma skoðunum sínum á framfæri. Hugrún Pétursdóttir, varamaður í sveitarstjórn, setti þingið og Rebekka Rut Leifsdóttir aðalmaður Rangárþings ytra í Ungmennaráði Suðurlands kynnti hlutverk Ungmennaráðs og sagði um leið frá þeim tækifærum sem hún hefur fengið sem fulltrúi í Ungmennaráði Suðurlands. Mál málanna á Ungmennaþingi eru umræðuhópar, þá er skipt upp í fjóra minni hópa sem svo fara á mismunandi umræðustöðvar. Umræðustöðvunum var stýrt af meðlimum Ungmennaráðs sem svo höfðu með sér ritara. Ungmennaráð mun í kjölfarið taka saman helstu niðurstöður umræðuhópanna og kynna fyrir sveitarstjórn. Snapchat stjörnurnar Eva Ruzo og Hjálmar Örn enduðu svo þingið á því að ræða um sig sem samfélagsmiðlastjörnur, hvernig það gengur fyrir sig ásamt almennum umræðum um lífið. Frábært þing og á UngRy mikinn heiður skilið fyrir að halda það.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?