Framkvæmdir á Laugalandi í fullum gangi

Ákveðið var í vetur að ráðast í endurbætur á húsnæðinu á Laugalandi og hófust framkvæmdir um leið og skólastarfi lauk í vor. Verkið gengur vel og nú er unnið að nokkrum verkefnum samhliða í skólabyggingunni, leikskóladeildinni og íþróttahúsinu.

Áhersla er lögð á að skólastofur grunnskólans verði tilbúnar áður en skólastarf hefst. Þar er nú unnið að uppsetningu kerfislofts og loftræstingar, auk þess sem skipt verður um gólfefni á hluta ganga.

Í leikskólahlutanum miðar framkvæmdum sömuleiðis vel áfram. Gert er ráð fyrir að deildin geti tekið til starfa áður en skólastarf hefst, en leikskólinn mun nýta aðstöðu í grunnskólanum þar til skólastarf hefst. Endanlegar hurðir og innréttingar eru væntanlegar í byrjun september og fer lokafrágangur fram í kjölfarið, áætlað er að honum ljúki í október. Þá verða gluggar á austurhlið eldri skólabyggingar endurnýjaðir. Gluggarnir eru væntanlegir um miðjan júlí og verður unnið að frágangi innanhúss áður en skólastarf hefst. Frágangur utanhúss fer fram í haust.

Í íþróttahúsinu verður sett upp skiptitjald svo hægt verði að skipta íþróttasalnum í tvö rými. Þá verða einnig settar upp nýjar körfuboltakörfur og er áætlað að þeirri vinnu verði lokið í ágúst. Ný lýsing í íþróttasal hefur verið pöntuð og verður uppsetning hennar tímasett þegar afhendingartími liggur fyrir.

Samhliða öðrum framkvæmdum er hafin vinna við að mála elstu þök skólabyggingarinnar.

Endurbæturnar munu bæta aðstöðuna til muna fyrir nemendur, starfsfólk og aðra notendur húsnæðisins á Laugalandi.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá framkvæmdunum

.