Framkvæmdir RARIK – fyrirhuguð leið um þéttbýlið á Hellu

Uppfærð lagnaleið RARIK á Hellu

RARIK hefur endurskoðað áður kynnta lagnaleið vegna framkvæmda við lagnavinnu á Hellu. Ný lagnaleið, sem sýnd er með grænu á meðfylgjandi korti, er talin henta betur en sú leið sem áður hafði verið fyrirhuguð.

Breytingin hefur þó í för með sér aukið rask fyrir íbúa í Borgarsandi þar sem nauðsynlegt verður að opna gangstéttina til að endurnýja lagnir á svæðinu. RARIK mun leitast við að lágmarka ónæði fyrir íbúa eins og kostur er á meðan framkvæmdir standa yfir.

Á öðrum hlutum framkvæmdaleiðarinnar er gert ráð fyrir að borað verði undir vegi eftir því sem við á, þannig að ekki þurfi að rjúfa yfirborð þeirra vegna lagnanna.

Framkvæmdir hófust 9. september og var upphaflega gert ráð fyrir að þær stæðu yfir í um tvær vikur. Verktaki við framkvæmdina er Þjótandi í samstarfi við RARIK.

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát í nágrenni framkvæmdasvæðisins á meðan vinna stendur yfir.

*Fréttin hefur verið uppfærð.

Fyrirhuguð framkvæmdaleið RARIK á Hellu er merkt með grænni línu á kortinu.