Framkvæmdir við Freyvang

Framkvæmdir hefjast á Freyvangi á Hellu á mánudag þegar verktakafyrirtækið Þjótandi mun hefja fræsingu á malbiki götunnar. Af því tilefni er íbúum og öðrum vegfarendum bent á að mikilvægt sé að gatan verði laus við bíla eftir hádegi þann dag svo framkvæmdir geti gengið greiðlega fyrir sig.

Í kjölfar fræsingarinnar hefjast framkvæmdir við uppmokstur og endurnýjun lagna á svæðinu. Búast má við einhverju ónæði vegna framkvæmdanna næstu vikur, bæði hvað varðar umferð og aðgengi. Til að tryggja örugga leið að húsum verða settar upp göngubrýr þar sem þess gerist þörf.

Verkefnið er unnið á vegum Rangárþings ytra í samstarfi við Vatnsveituna, Veitur og RARIK.

Þrátt fyrir að hægt verði að aka um Freyvang að fræsingu lokinni má gera ráð fyrir tímabundnum takmörkunum á umferð á meðan framkvæmdir standa yfir.

Frekari upplýsinga um framkvæmdina er hægt að leita í Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra í síma 487-5284.