Frístundastyrkur er nú í boði fyrir börn fædd 2020

Sveitarfélagið bendir foreldrum barna sem verða 6 ára á árinu, fædd 2020, á að þau eiga nú rétt á frístundastyrk sveitarfélagsins.

Frístundastyrkur er í boði fyrir öll börn með lögheimili í Rangárþingi ytra frá 6–16 ára og miðast styrkurinn við fæðingarár.

Upphæðin fyrir hvert barn er kr. 60.000 árið 2026.

Styrkinn er hægt að nýta upp í allt íþrótta og frístundastarf sem samræmist reglum sveitarfélagsins. Bent er á að tónlistarnám telst einnig styrkhæft.

Nánar má lesa um frístundastyrkinn með því að smella hér og reglunar má lesa hér.