Frjálsíþróttaæfingar á íþróttavellinum á Hellu

Íþróttafélagið Dímon, Íþróttafélagið Garpur og Ungmennafélagið Hekla ætla að standa saman að frjálsíþróttaæfingum á íþróttavellinum á Hellu í maí og júní í sumar.

Æfingarnar verða á þriðjudögum kl: 17.00 – 18.30 og er fyrsta æfing þriðjudaginn 22 maí. Öllum er heimilt að mæta og taka þátt.

Þjálfari er Rúnar Hjálmarsson og kemur hann frá Selfossi. Æfingarnar verða öllum sem mæta að kostnaðarlausu.

Viljum við hvetja alla sem áhuga hafa á að vera með að mæta og taka þátt. Einnig viljum við hvetja foreldra til þess að benda börnum sínum á þessar æfingar og hvetja þau til að mæta. Takmarkið er að taka þátt í héraðsmóti HSK sem verður uppúr miðjum júní.

Nánari upplýsingar gefur Guðmundur í síma 868-1188.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?