Fyrri umræða fjárhagsáætlunar afgreidd

Sveitarstjórn lauk í dag fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Rangárþings ytra fyrir árin 2026-2029 og samþykkti tillöguna samhljóða. Seinni umræða fer fram á næsta fundi sveitarstjórnar þann 10. desember næstkomandi þar sem fjárhagsáætlun verður tekin til lokaafgreiðslu.

Lykiltölur

Samkvæmt útkomuspá verður rekstrarniðurstaða ársins 2025 jákvæð sem nemur um 340 milljónum. Fjárhagsáætlun 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaðan verði jákvæð um rúmar 346 milljónir.

Fjárfestingar á döfinni

Gert er ráð fyrir að heildarfjárfesting ársins 2026 nemi um 1 milljarði. Helstu fjárfestingar sem gert er ráð fyrir á árinu 2026 eru að ljúka við 2. áfanga Grunnskólans á Hellu og hefja byggingu nýs leikskóla á Hellu. Þá eru áætlaðar töluverðar framkvæmdir við skóla- og íþróttavallarsvæðið á Hellu auk verulegra framkvæmda við Laugalandsskóla.