Framkvæmdir við nýjan leikskóla á Hellu taka nú á sig sífellt skýrari mynd en uppsetning fyrstu veggeininganna er hafin. Undirstöður leikskólans eru nú þegar vel sjáanlegar og með uppsetningu veggjanna hefst nýr og áberandi áfangi í framkvæmdunum.
Nýr leikskóli er eitt stærsta og mikilvægasta uppbyggingarverkefni sveitarfélagsins en samhliða því að verið er að ljúka við skólabygginguá Hellu, umhverfi gervigrasvallar og frjálsíþrótasvæði í bígerð. Einnig eru framkvæmdir í leik- og grunnskólanum á Laugandi.
Leikskólinn mun gjörbreyta aðstöðu barna og starfsfólks með nútímalegu, rúmgóðu og vel búnu húsnæði sem styður við öflugt leik- og skólastarf og skapar betri vinnuaðstæður. Jafnframt mun nýja húsnæðið gera sveitarfélaginu kleift að mæta vaxandi þörf fyrir leikskólapláss til framtíðar.
Framkvæmdir hafa gengið vel og eru samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að byggingin verði fokheld fyrir áramót og að nýr leikskóli taki til starfa um áramótin 2027–2028. Meðfylgjandi myndir sýna uppsetningu fyrstu veggeininganna ásamt yfirlitsmyndum af framkvæmdasvæðinu.


