Það var ánægjuleg stund á Hellu laugardaginn 15. ágúst þegar Knattspyrnufélag Rangæinga (KFR) og Stracta Hotels undirrituðu samning um nafnarétt að gervigrasvellinum á Hellu. Völlurinn mun næstu fimm árin bera nafnið Stracta-völlurinn.
Hreiðar Hermannsson undirritaði samninginn fyrir hönd Stracta Hotels ásamt fulltrúum KFR. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, var jafnframt viðstaddur undirritunina.
Samningurinn er mikil lyftistöng fyrir starf Knattspyrnufélags Rangæinga, en Stracta Hotels greiðir félaginu 20 milljónir króna í eingreiðslu fyrir fimm ára samningstímabil. Framlagið skapar félaginu aukið svigrúm til að efla starf sitt og halda áfram öflugri uppbyggingu knattspyrnunnar í Rangárvallasýslu.
Samningurinn byggir á samkomulagi Rangárþings ytra og KFR þar sem félaginu var veitt heimild til að selja nafnarétt að gervigrasvellinum í fjáröflunarskyni og rennur allur ágóði af sölu nafnsins til KFR. Samhliða heimildinni til sölu nafnaréttar var samið um að að minnsta kosti helmingur allra heimaleikja meistaraflokka KFR fari fram á Stracta-vellinum á Hellu.
Rangárþing ytra hefur á undanförnum árum lagt mikla fjármuni og áherslu í uppbyggingu aðstöðu til knattspyrnuiðkunar á Hellu. Tilkoma gervigrasvallarins hefur verið bylting fyrir knattspyrnustarfið og skapað allt aðrar forsendur til æfinga og keppni en áður voru fyrir hendi.

Eiríkur Vilhelm, Tinna og Hreiðar handsala samninginn.
Uppbyggingunni er þó hvergi nærri lokið. Í sumar komu ný varamannaskýli við völlinn og unnið hefur verið að sífellt betri búningsaðstöðu fyrir leikmenn og dómara. Áfram verður haldið að bæta umgjörð vallarins og gera aðstöðuna enn betri fyrir iðkendur, keppendur og gesti. Markmiðið er að aðstaðan við völlinn uppfylli að lágmarki D-flokks kröfur KSÍ.
Samstarf Rangárþings ytra og KFR byggir á sameiginlegu markmiði um öflugt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf fyrir börn og ungmenni. Með öflugri aðstöðu, kraftmiklu starfi félagsins og góðum stuðningi atvinnulífsins eru allar forsendur til þess að horfa björtum augum til framtíðar.
Samningurinn við Stracta Hotels er frábært dæmi um þann kraft sem getur skapast þegar sveitarfélag, íþróttahreyfing og atvinnulíf taka höndum saman.
Rangárþing ytra óskar KFR og Stracta Hotels innilega til hamingju með samninginn og nýja Stracta-völlinn.
Megi starf Knattspyrnufélags Rangæinga halda áfram að vaxa og blómstra um ókomna tíð.