Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgar um 12%

Gistinætur á hótelum í júlí voru 254.900 samanborið við 227.500 í júlí 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 90% af heildarfjölda gistinátta í júlí en gistinóttum þeirra fjölgaði um 13% samanborið við júlí 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 8%.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu voru 154.100 gistinætur eða um 14% fleiri en í júlí 2011. Á Suðurlandi voru 37.900 gistinætur á hótelum í júlí sem er rúmlega 10% aukning samanborið við fyrra ár. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 10%, voru 28.300 samanborið við 25.800 í júlí 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum einnig um 10% en þar var fjöldi gistinátta 11.700. Gistinætur á Austurlandi voru 12.700 og fjölgaði um rúm 7%. Gistinætur á Suðurnesjum voru 10.200 eða um 6% fleiri en í júlí 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um rúm 18% fyrstu sjö mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins 2012 voru 1.026.100 en voru 866.900 fyrir sama tímabil árið 2011. Á þessu tímabili hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 20% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?