Gjaldfrjáls bókasöfn fyrir alla íbúa Rangárþings ytra

 

Frá og með 1. janúar 2024 hætti Rangárþing ytra að rukka íbúa fyrir útlán á bókasöfnum sveitarfélagsins. Bókasöfnin eru þrjú, staðsett í Grunnskólunum á Hellu og Laugalandi og í íþróttahúsinu í Þykkvabæ.

Rangárþing ytra er meðal fyrstu sveitarfélaga landsins sem tekur þetta skref og segist Birta Huld Halldórsdóttir, kennari og bókasafnsvörður á Hellu, hafa tekið eftir nokkrum nýjum andlitum eftir þessa breytingu.

Birta segir að þótt rýmið sé ekki stórt sé bókakosturinn frábær, eða fleiri en 14.000 bækur, og hvetur fólk til að kíkja í heimsókn þar sem reglulega bætast nýjar bækur við safnið.

Almenningsbókasafnið á Hellu hefur verið í Grunnskólanum á Hellu frá árinu 1999 en saga þess nær aftur til ársins 1906 þegar nokkrar konur úr sveitinni stofnuðu Lestrarfélag kvenna á Rangárvöllum.

Rangárþing er fjölbreytt fjölmenningarsamfélag sem leggur áherslu á að öll geti setið við sama borð þegar kemur að þjónustu sveitarfélagsins. Gjaldfrjáls útlán bókasafnanna eru því heillaskref í átt að jafnara samfélagi sem hvetur íbúana til að lesa og leita sér fróðleiks og skemmtunar.

 

Opnunartímar safnanna frá 1. september til 31. maí eru sem hér segir:

Bókasafnið Hellu: Mánudagar 16:00-17:30 og Fimmtudagar 20:00-21:00

Bókasafnið Laugalandi: Fimmtudaga frá 19:30–21:30

Bókasafnið í Þykkvabæ: Þriðjudaga frá kl. 19:30–21:30

 

Bókasafnið á Hellu er notalegt og rúmgott

Bókaklúbbarnir eru vinsælir meðal barnanna og hvetja til lesturs

Þetta glæsilega Njálulistaverk hangir upp á vegg bókasafnsins á Hellu

Krökkunum finnst afar spennandi að bera hæð sína saman við sögupersónur

Pólski bókakosturinn er mikilvægur enda mikill fjöldi fólks af pólskum uppruna í sveitarfélaginu

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?