Gjaldfrjáls útlán á bókasöfnum sveitarfélagsins

Sú breyting tók gildi 1. janúar 2024 að nú er ekkert gjald tekið af íbúum fyrir útlán á bókasöfnum sveitarfélagsins.

Þetta gildir um öll bókasöfn Odda bs. en þau eru í grunnskólunum á Hellu og Laugalandi og íþróttahúsinu í Þykkvabæ.

Við hvetjum alla íbúa til að nýta sér frábæran bókakost safnanna fyrir alla fjölskylduna.

 

Opnunartímar bókasafnanna eru eftirfarandi:

Hella: Mánudaga frá 16:00–17:30 og fimmtudaga frá 20:00–21:00

Laugaland: Fimmtudaga frá 19:30–21:30

Þykkvibær: Þriðjudaga frá 17:00–18:30

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?