24. apríl 2025
Fréttir

Rangárþing ytra óskar starfsfólki, íbúum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars!
Skrifstofa sveitarfélagsins er lokuð í dag en opið er á morgun eins og venjulega.
Sumardagurinn fyrsti er fyrsti dagur Hörpu sem markaði upphaf sumarmisseris samkvæmt gamla íslenska misserisdagatalinu. Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp á fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl og er því ætíð á tímabilinu 19.–25. apríl. Sumardagurinn fyrsti varð almennur frídagur árið 1971.
Ýmsan fróðleik um sumardaginn fyrsta má lesa með því að smella á tenglana hér fyrir neðan: