Svarfþrærnar sem gripu borvatnið, kældu það og felldu út bergmulninginn áður en það var endurnýtt í …
Svarfþrærnar sem gripu borvatnið, kældu það og felldu út bergmulninginn áður en það var endurnýtt í borun.

Í júlí var boruð ný heitavatnshola í Kaldárholti í Rangárþingi ytra. Fyrir eru á svæðinu tvær vinnsluholur sem nýttar eru fyrir Rangárveitur.

Nýja holan, KH-39, er um 800 metra djúp og því um 300 metrum dýpri en holurnar sem fyrir voru. Fyrstu niðurstöður prófana benda til þess að afköst hennar séu sambærileg við eldri holurnar, en þær skila hvor um sig um 50 lítrum á sekúndu af 65°C heitu vatni.

Staðsetning holunnar var valin í samstarfi við ÍSOR og North Tech Drilling sá um borunina.

Hvað tekur nú við?

Frekari prófanir verða gerðar á holunni á næstunni. Ef niðurstöður halda áfram að vera jákvæðar verður holan virkjuð, en það felur meðal annars í sér að dæla verður sett niður í holuna til að tryggja stöðuga og örugga vinnslu vatnsins.

Virkjun holunnar mun auka rekstraröryggi Rangárveitna. Komi upp bilun í eldri holunum getur nýja holan meðal annars nýst sem varaafl.

Til þess að hægt verði að flytja aukið magn af heitu vatni frá Kaldárholti til íbúa á svæðinu þarf þó einnig að auka flutningsgetu veitukerfisins, meðal annars með sverari lögnum. Slíkar framkvæmdir eru umfangsmeiri og taka lengri tíma.

Veitur lýsa yfir ánægju með árangurinn í Kaldárholti og fyrstu niðurstöður borunarinnar.Borinn í Kaldárholti sem North Tech Drilling notaði. Í forgrunni sjást stálrör sem notuð eru í vinnslufóðringu holunnar. Vinnslufóðringin tryggir að kalt grunnvatn komist ekki inn í holuna.