11. maí 2026
Götusópun hefst á Hellu mánudaginn 11. maí! Unnið verður við sópun og þvott gatna 11.-13. maí.
Sveitarfélagið biðlar til íbúa að sjá til þess að pláss verði til að sópa allar götur. Því þarf að passa að ökutækjum sé ekki lagt á götum meðfram gangstéttum þessa daga.
Einnig minnum við eigendur númerslausra bíla, kerra og annarra ökutækja á að fjarlægja þau hið fyrsta. Að öðrum kosti verður gripið til notkunar álímingarmiða og tækin í kjölfarið fjarlægð.