Grunnskólinn á Hellu stækkar

Ný viðbygging grunnskólans var tekin í notkun í byrjun skólaárs og þykir hún einkar vel heppnuð. Rýmið er bjart og rúmt og eru kennarar jafnt sem nemendur afar ánægðir með aðstöðuna.

 

Unnið hefur verið að því að fínpússa hitt og þetta, frágangi er að mestu lokið og húsnæðið komið í fulla notkun.

19. janúar síðastliðinn var opið hús þar sem öllum stóð til boða að skoða nýbygginguna.

Góðir gestir mættu til að skoða húsakynnin, njóta veitinga og spjalla við stjórnendur og starfsfólk.

Nýr og glæsilegur klifurkastali var einnig reistur á leiksvæði skólans nýlega, börnunum til mikillar ánægju.

2. áfangi stækkunar Helluskóla er einnig hafinn sunnan megin við skólann og gengur þar allt samkvæmt áætlun.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?