
Laus er staða umsjónarkennara á yngsta- og/eða miðstigi við Grunnskólann Hellu frá og með 1. ágúst nk.
Hæfnikröfur:
- Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Kennslureynsla æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.
Í Grunnskólanum Hellu eru 183 nemendur í 1.-10. bekk.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða
til að fá frekari upplýsingar:
Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217
Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022/848 1467
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí nk.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar öllum kynjum.