Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2022-2023

Lausar eru stöður umsjónarkennara og íþróttakennara í hlutastarfi frá og með 1. ágúst nk.

 

Leitað er eftir einstaklingum sem uppfylla eftirfarandi menntunar- og færnikröfur:

  • Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • ART námskeið
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði
  • Æskilegt að viðkomandi sé með grunnþekkingu í pólsku

 

Í Grunnskólanum Hellu eru nú 135 nemendur í 1.-10. bekk.

 

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða

til að fá frekari upplýsingar:

Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217

Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 848 1467

Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?