Guðmundur Friðrik Björgvinsson íþróttamaður Rangárþings ytra 2015

Viðurkenningarhátíð Íþróttamanns Rangárþings ytra 2015 var haldin í vikunni. Allir þeir sem höfðu keppt með landsliði, unnið sér inn Íslandsmeistara- eða alþjóðlegan titil fengu viðurkenningu. Einnig var veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi starf í íþrótta- og tómstundamálum.

Eftirfarandi fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur: Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona í fótbolta,  Gústav Ásgeir Hinriksson landsliðsmaður í hestaíþróttum og Íslandsmeistari í fjórgangi, fimmgangi og slaktaumatölti ungmenna og 250m skeiði, Rakel Nathalie Kristinsdóttir landsliðskona í fimleikum, Róbert Bergmann landsliðsmaður í hestaíþróttum og Íslandsmeistari í Tölt T1 ungmenna og Guðmundur Friðrik Björgvinsson landsliðsmaður í hestaíþróttum og Íslands- og heimsmeistari í fjórgangi á hestinum Hrímni frá Ósi. Guðmundur Friðrik Björgvinsson hlaut titilinn Íþróttamaður Rangárþings ytra 2015 og fékk því farandbikar og Samverksbikarinn til eignar. Allir þessar einstaklingar hafa æft af kappi í mörg ár og uppskera eftir því. Guðmundur Jónasson fékk viðurkenningu frá Rangárþingi ytra fyrir framúrskarandi starf að íþrótta- og tómstundamálum, Guðmundur hefur verið formaður Ungmennafélagsins Heklu og verið mikil driffjöður í íþrótta- og tómstundamálum í Rangárþingi ytra.

f.v. Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri, Guðmundur Jónasson, Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Sindri Snær Bjarnason, Gísli Guðjónsson (f.h. Rakel Nathalie Kristinsdóttur) og Róbert Bergmann. Á myndina vantar Dagnýju Brynjarsdóttur og Gústaf Ásgeir Hinriksson.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?