Af hverju Gulur september?
Af hverju Gulur september?

Gulur september er samstarfsverkefni fjölmargra stofnana, félagasamtaka og annarra aðila sem vilja sameinast um að efla geðrækt, auka þekkingu á sjálfsvígsforvörnum og minna á mikilvægi þess að sýna hvert öðru umhyggju og vera til staðar.

Áhersla ársins 2026 – ungt fólk

Í ár verður sérstök áhersla lögð á ungt fólk. Markmiðið er að ná til ungmenna þar sem þau eru – meðal annars í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsstarfi og á samfélagsmiðlum.

Einnig verður lögð áhersla á að virkja tónlistar- og kórasamfélagið og hvetja til fjölbreyttrar þátttöku, svo sem með söng, gulum æfingum, viðburðum og öðrum skapandi leiðum.

Dagskrá og kynningarefni

Fjölbreytt dagskrá verður í boði allan september og geta samstarfsaðilar einnig skráð sína eigin viðburði. Dagskrá, kynningarefni og hugmyndir að þátttöku má finna á gulurseptember.is.