Hál ertu Njála - fyrirlestur á Laugarvatni
Miðvikudagskvöldið 25. febrúar nk. kl. 20 mun Hallgrímur Helgason, rithöfundur, halda fyrirlestur um Njálu í matsal Menntaskólans að Laugarvatni. Þar mun hann fjalla um þessa Biblíu Íslendinga, reyna að komast yfir hana, átta sig á list hennar og lífsmagni, og spyrja Njálu hreint út hvað hún sé. Ertu sönn saga, skáldsaga, kjaftasaga eða bara hinn eilífi samkomustaður Íslendinga? (Fyrst flutt í Eddu, í fyrirlestraröð á vegum Árnastofnunar, þann 4. október síðastliðinn.)
Fyrirlesturinn er í boði Gullkistunnar, sköpunarmiðstöðvar á Laugarvatni, en Hallgrímur hefur dvalið þar við skriftir frá áramótum.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
---------
Hallgrímur Helgason hefur starfað sem rithöfundur og myndlistarmaður frá árinu 1982. Hann hefur sent frá sér 12 skáldsögur auk ljóðabóka og leikritaþýðinga. Kunnastar bóka hans eru 101 Reykjavík, Konan við 1000 gráður og Sextíu kílóa sagan.

 

Tengill á viðburðinn á Facebook