Sigríður Harpa Jónsdóttir frá Hellu hefur verið ráðin byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings og er tekin til starfa.
Harpa tekur við starfinu af Stefáni Friðriki Friðrikssyni sem er tekinn við stöðu verkefnastjóra miðlunar hjá SASS og ORKÍDEU.
Harpa er fædd og uppalin á Hellu en er búsett á Hvolsvelli. Sem byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings sinnir hún byggðaþróunarverkefnum fyrir bæði Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.
Hún verður með starfsstöð á skrifstofu Rangárþings ytra í Miðjunni á Hellu á mánudögum og er íbúum bent á netfangið hennar, harpa@ry.is, vilji þeir ná sambandi við hana.
Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundunum verkefnum á sviði byggðaþróunar. Auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðarþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við Rangárþing ytra og Rangárþing eystra og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).
Samráð íbúa og byggðaþróunarfulltrúa er mikilvægt svo raddir almennings fái að heyrast og séu teknar með í reikninginn við áherslu- og stefnumótun svæðisins og er fólk hvatt til að hafa samband við Hörpu á harpa@ry.is .
Við bjóðum Hörpu velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar.